Þjónusta

Öryggi slær út, ljós blikka, hleðslustöð fyrir bílinn

Rafvirkjar á Akureyri

Vantar þig rafvirkja á Akureyri? Löggiltir rafvirkjar á Akureyri og um allt Norðurland sjá um allt frá lítilli viðgerð á innstungu upp í raflagnir í heilum nýbyggingum. Unnið er eftir reglum HMS (Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar) og verkið er tilkynnt eins og lög gera ráð fyrir.

Hringja í 772 3000

Svarað virka daga 08–18

Eða sendu beiðni

Náum við ekki að svara, hringjum við til baka samdægurs á virkum dögum.

Liggur á? Sjáðu fyrstu skrefin ef rafmagnið slær út.

Stofa í ljósaskiptunum með hlýrri birtu frá loftljósi, veggljósum og gólflampa.
Tölvugerð mynd.

Teikningin

Hluti af sniðmynd af steyptu húsi á Akureyri: rafmagnstaflan og raflagnirnar.
Úr sniðmyndinni: rafmagnstaflan og raflagnirnar.

Hvað við gerum

  • Nýlagnir í íbúðum, fyrirtækjum og sumarhúsum
  • Öryggisskoðanir og úttektir
  • Skipti á töfluskápum og varbúnaði
  • Lýsing innan- og utandyra og uppsetning LED-ljósa
  • Hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla
  • Hitastýringar, snertilausir rofar og snjallheimilisbúnaður
  • Bilanaleit og viðgerðir á eldri kerfum
  • Tenging við Norðurorku og ísetning mæla

Hér fyrir norðan

Rafbílum fjölgar hratt á Akureyri og æ fleiri vilja hleðslu­stöð heima, bæði í einbýli og fjölbýli. Við hjálpum þér að velja réttan búnað, sjáum um umsóknina til Norðurorku og setjum stöðina upp samkvæmt gildandi stöðlum.

Hvenær á að hringja

Þú ættir að hringja ef…

  • Öryggin slá ítrekað út eða ljósin blikka
  • Þú ert að kaupa rafmagnsbíl og þarft hleðslustöð
  • Rafmagnstaflan er gömul og rúmar ekki fleiri rofa
  • Þú ert að gera upp eða byggja nýtt
  • Þér finnst lýsingin döpur eða óhentug
  • Þú vilt láta yfirfara rafmagnið áður en húsið er selt
Hringja í 772 3000

Svarað virka daga 08–18

Eða sendu beiðni

Náum við ekki að svara, hringjum við til baka samdægurs á virkum dögum.

Svona gengur það fyrir sig

  1. Þú hefur samband

    Segðu okkur hvað þarf að gera. Við svörum samdægurs á virkum dögum.

  2. Við skoðum verkið

    Við komum á staðinn eða skoðum myndir og gefum þér hugmynd um hvað verkið tekur langan tíma.

  3. Við fáum rétta fólkið

    Við bókum lærða iðnaðarmenn úr okkar neti og skipuleggjum verkið svo hver og einn komi á réttum tíma. Þú þarft ekki að samræma neitt.

  4. Einn reikningur í lokin

    Þú færð einn reikning fyrir allt verkið, með sundurliðun á verkliðum.

Spurningar um rafvirkjun

Hvað kostar rafvirki á Akureyri?

Það fer eftir verkinu og hve flókið það er. Við förum yfir verkið með þér og þú veist hvað það kostar áður en vinna hefst.

Eru rafvirkjarnir löggiltir?

Já. Allir rafvirkjar sem magic sendir í verk eru löggiltir. Verkin eru tilkynnt til HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar).

Hvað kostar að setja upp hleðslustöð heima?

Það fer eftir stöðinni, hve langt er í rafmagnstöfluna og hvort grafa þarf fyrir streng. Við skoðum aðstæður og sjáum líka um umsóknina til Norðurorku. Þú veist kostnaðinn áður en vinna hefst.

Hversu fljótt getið þið komið ef eitthvað bilar?

Í bráðaverkum kemur rafvirki yfirleitt samdægurs á virkum dögum og almenn verk hefjast yfirleitt innan 2–3 virkra daga. Við svörum símtölum samdægurs á virkum dögum.

Þarf úttekt eftir nýlögn?

Já. Allar nýlagnir eru tilkynntar til HMS þegar verkinu lýkur. Við sjáum um pappírsvinnuna og þú færð öll skjöl í hendur.

Blá rafdrifin Genie GS-1930 skæralyfta á hvítum grunni.

Lyftuleigan

Þarftu lyftu í verkið?

Ljósaverk í háum loftum, kapallagnir og töfluvinna í atvinnuhúsnæði kalla oft á lyftu. Lyftuleigan leigir út hljóðlátar rafmagnsskæralyftur með allt að 8 m vinnuhæð sem óhætt er að nota innandyra.

Skoða lyfturnar(opnast í nýjum flipa)

Meira um rafvirkjun

  • Rafmagnið slær út: lekaliði, yfirálag eða bilun?

    Þegar rafmagnið slær út hefur lekaliðinn eða öryggi rofið strauminn, oftast vegna tækis. Hér sérðu hvað er óhætt að prófa, hvað þú gerir aldrei og hvenær þarf rafvirkja.

    , 6 mínútna lestur

  • Hvað kostar rafvirki? Það sem ræður verðinu

    Aldur raflagna og töflu, umfang verksins og efnið ráða mestu um kostnað við rafvirkja. Hér er líka farið yfir töfluskipti, hleðslustöðvar og tilkynningu til HMS.

    , 5 mínútna lestur

  • Hleðslustöð heima eða í fjölbýli á Akureyri

    HMS og Norðurorka mæla með fasttengdri hleðslustöð sem löggiltur rafverktaki setur upp. Hér sérðu hvað þarf að skoða heima, hvenær heimtaugin kemur við sögu og hvað lög um fjöleignarhús segja um fjölbýli.

    , 6 mínútna lestur

Hafa samband

Segðu okkur frá verkinu. Beiðni um rafvirkjun.

Fylltu út stutta beiðni. Við hringjum til baka samdægurs á virkum dögum, förum yfir verkið og bókum tíma.

Eða hringdu beint

772 3000

Svarað virka daga 08–18

Náum við ekki að svara, hringjum við til baka samdægurs á virkum dögum.

Hvað gerist næst?

  1. Við hringjum í þig.
  2. Við förum yfir verkið með þér.
  3. Við bókum réttan fagmann.
Hvað er að?
Hversu fljótt?

Liggur á? Hringdu í 772 3000. Svarað virka daga 08–18.

Hvar?
Bær eða hverfi.
Lýstu verkinu
Til dæmis „lekur krani á baði“ eða „nýtt parket á 12 m² stofu“.

Áttu mynd af þessu? Sendu hana á kk@organic.is.

Hvernig náum við í þig?
Við hringjum í þetta númer.
Hvenær hentar að við hringjum?

Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara beiðninni.

Eigum við að byrja?

772 3000

Svarað virka daga 08–18. Utan þess tíma getur þú sent beiðni og við hringjum að morgni næsta virka dags.