Liggur á?
Leki, rafmagnsleysi eða stífla? Fyrstu skrefin.
Hvað þú gerir strax, hvenær bilunin er hjá Norðurorku og hvenær þú hringir í okkur.
Svarað virka daga 08–18
Hringdu í 112 ef hætta er á ferðum.
Fyrstu skrefin
Opnaðu það sem á við.
Það lekur
- Lokaðu fyrir vatnið. Lokarnir eru yfirleitt í þvottahúsi eða geymslu nálægt rafmagnstöflunni, oftast kúlulokar með bláu eða rauðu handfangi. Finnurðu ekki lokann fyrir íbúðina, lokaðu þá fyrir inntakið í húsið.
- Verðu gólfið og rafmagnið. Færðu húsgögn og rafmagnstæki frá bleytunni og settu fötur eða handklæði undir lekann. Ekki snerta blauta innstungu. Taktu rafmagnið af í töflunni ef þú kemst að henni þurrum fótum.
- Taktu myndir fyrir tryggingafélagið áður en þú þurrkar upp.
Flæðir vatn að rafmagnstöflu eða niður á hæðina fyrir neðan? Hringdu líka í Norðurorku og biddu um að lokað verði fyrir vatnið inn í húsið. Bakvakt Norðurorku (opnast í nýjum flipa)
Hringdu í 112 ef hætta er á ferðum.
Svarað virka daga 08–18
Heita vatnið farið eða ofnar kaldir
- Athugaðu hvort nágrannarnir séu líka án heits vatns.
- Ef það er um allt hverfið, eða mælirinn er bilaður, er það hjá Norðurorku. Allt utan við mælinn er á ábyrgð Norðurorku.
- Ef það er bara hjá þér er það verk fyrir pípulagningamann, því allt innan við mælinn er á þína ábyrgð. Ef aðeins einn ofn er kaldur eru útfellingar úr vatninu oft ástæðan.
Norðurorka birtir tilkynningar þegar lokað er fyrir heita vatnið. Tilkynningar um þjónusturof (opnast í nýjum flipa)
Hringdu í 112 ef hætta er á ferðum.
Svarað virka daga 08–18
Hvenær á að hringja í Norðurorku og hvenær í pípulagningamann?
Rafmagnið slær út
- Ef bleyta er nálægt töflu eða innstungu skaltu ekki snerta neitt blautt. Taktu rafmagnið af í töflunni aðeins ef þú kemst að henni þurrum fótum.
- Athugaðu hvort rafmagnið sé líka farið hjá nágrönnunum. Ef svo er, er bilunin utan við húsið og hjá Norðurorku.
- Slá öryggin ítrekað út hjá þér, eða blikka ljósin? Það er verk fyrir rafvirkja. Segðu okkur hvað var í gangi þegar það sló út.
Norðurorka birtir tilkynningar þegar rafmagnið er tekið af. Tilkynningar um þjónusturof (opnast í nýjum flipa)
Hringdu í 112 ef hætta er á ferðum.
Svarað virka daga 08–18
Stíflað klósett eða niðurfall
- Ef vatn flæðir upp skaltu færa hluti og rafmagnstæki frá bleytunni og setja tuskur eða handklæði undir.
- Hafi vatnið valdið tjóni, taktu myndir fyrir tryggingafélagið áður en þú þurrkar upp.
- Lýstu því sem þú sérð þegar þú hringir: hvar stíflan er og hve lengi hún hefur staðið. Ef klósettið stíflast oft er rétt að láta líta á lögnina.
Hringdu í 112 ef hætta er á ferðum.
Svarað virka daga 08–18
Hvenær á að hringja í Norðurorku, 112 eða fagmann?
- 112
- Ef hætta er á ferðum, til dæmis ef kviknað hefur í eða fólk er í hættu.
- Norðurorka
- Ef heita vatnið, kalda vatnið eða rafmagnið er farið um allt hverfið, eða mælirinn er bilaður. Allt utan við mælinn er á ábyrgð Norðurorku. Flæðir vatn að rafmagnstöflu eða niður á hæðina fyrir neðan? Biddu Norðurorku að loka fyrir vatnið inn í húsið. Utan opnunartíma er Norðurorka með bakvakt.Bakvakt Norðurorku (opnast í nýjum flipa)Tilkynningar um þjónusturof (opnast í nýjum flipa)
- Pípulagningamaður eða rafvirki
- Allt innan við mælinn er á þína ábyrgð: leki í íbúðinni, ofnar sem hitna ekki, stífla eða öryggi sem slá ítrekað út. Hringdu í okkur í 772 3000 og við finnum réttan fagmann.Pípulagnir á AkureyriRafvirkjar á Akureyri
Utan opnunartíma
Hvað ef þetta gerist utan opnunartíma?
Svarað virka daga 08–18. Utan þess tíma getur þú sent beiðni hér fyrir neðan eða í spjallinu og við hringjum í þig þegar opnar.
Sendir þú beiðni utan opnunartíma, hringjum við í þig að morgni næsta virka dags.
Hvenær fagmaður kemur fer eftir verkinu og við förum yfir það þegar við hringjum. Liggur á utan opnunartíma? Fylgdu fyrstu skrefunum hér fyrir ofan, hringdu í bakvakt Norðurorku ef bilunin er utan við mælinn og í 112 ef hætta er á ferðum.
Hafa samband
Segðu okkur frá verkinu.
Fylltu út stutta beiðni. Við hringjum til baka samdægurs á virkum dögum, förum yfir verkið og bókum tíma.
Eða hringdu beint
772 3000Svarað virka daga 08–18
Náum við ekki að svara, hringjum við til baka samdægurs á virkum dögum.
Hvað gerist næst?
- Við hringjum í þig.
- Við förum yfir verkið með þér.
- Við bókum réttan fagmann.
Eigum við að byrja?
772 3000Svarað virka daga 08–18. Utan þess tíma getur þú sent beiðni og við hringjum að morgni næsta virka dags.