Þjónusta

Frestunarlistinn, allt það smáa sem hefur beðið

Viðhald og smáverk á Akureyri

Vantar þig iðnaðarmann í smáverkin? Þegar eitthvað brotnar eða bilar á heimilinu þarf oftast fleiri en eitt fag. Við sjáum um allt, frá smáviðgerðum upp í heildarendurnýjun, og þú talar bara við einn aðila.

Hringja í 772 3000

Svarað virka daga 08–18

Eða sendu beiðni

Náum við ekki að svara, hringjum við til baka samdægurs á virkum dögum.

Vel við haldið hús á Norðurlandi með nýjum þakrennum og niðurfallsrörum og nýmáluðum gluggakörmum.
Tölvugerð mynd.

Teikningin

Hluti af sniðmynd af steyptu húsi á Akureyri: þakbrúnin, þakrennan og niðurfallsrörið.
Úr sniðmyndinni: þakbrúnin, þakrennan og niðurfallsrörið.

Hvað við gerum

  • Smáviðgerðir innanhúss og utan
  • Viðhaldsmálun og umhirða timburverks
  • Skipt um sökkullista, þéttingar og hurðakarma
  • Lekaleit og viðgerðir á þökum og þakgluggum
  • Hreinsun og viðhald á þakrennum
  • Árlegt viðhald á sumarhúsum og útihúsum
  • Endurnýjun á heilum baðherbergjum eða eldhúsum
  • Smáverkin sem hafa setið á hakanum

Hér fyrir norðan

Mörg hús á Akureyri, sérstaklega á Brekkunni og Eyrinni, eru 40–80 ára gömul og þurfa reglulegt viðhald. Við þekkjum húsagerðina, vitum hvar helst fer að leka og getum sett saman verkefnalista fyrir þig svo allt sé klárt fyrir veturinn.

Hvenær á að hringja

Þú ættir að hringja ef…

  • Þú ert nýbúinn að flytja inn og verkefnalistinn lengist
  • Það lekur einhvers staðar en þú veist ekki hvar
  • Sumarhúsið þarf vorhreinsun og smáviðgerðir
  • Þú ert að gera upp og þarft iðnaðarmenn úr mörgum fögum
  • Húsið er að fara á sölu og þarf andlitslyftingu
  • Þú vilt láta yfirfara húsið áður en veturinn skellur á
Hringja í 772 3000

Svarað virka daga 08–18

Eða sendu beiðni

Náum við ekki að svara, hringjum við til baka samdægurs á virkum dögum.

Svona gengur það fyrir sig

  1. Þú hefur samband

    Segðu okkur hvað þarf að gera. Við svörum samdægurs á virkum dögum.

  2. Við skoðum verkið

    Við komum á staðinn eða skoðum myndir og gefum þér hugmynd um hvað verkið tekur langan tíma.

  3. Við fáum rétta fólkið

    Við bókum lærða iðnaðarmenn úr okkar neti og skipuleggjum verkið svo hver og einn komi á réttum tíma. Þú þarft ekki að samræma neitt.

  4. Einn reikningur í lokin

    Þú færð einn reikning fyrir allt verkið, með sundurliðun á verkliðum.

Spurningar um almennt viðhald

Get ég fengið einn aðila í mörg verk?

Já, það er einmitt það sem magic gerir. Pípulagnir, rafmagn, smíði, málun og flísalögn, allt með einum tengilið og á einum reikningi.

Hvað kostar viðhaldsmaður á Akureyri?

Það fer eftir verkunum og hve mörg þau eru. Við förum yfir verkið með þér og þú veist hvað það kostar áður en vinna hefst.

Sjáið þið líka um sumarhús?

Já, við sjáum um vorþrif, viðhaldsmálun, þéttingar á gluggum og almennt eftirlit. Við mælum með því að fara yfir húsið árlega fyrir sumarið.

Hversu fljótt getið þið komið?

Smáverk hefjast yfirleitt innan viku. Stærri verk hefjast eftir samkomulagi, þegar búið er að skoða aðstæður.

Hvernig fæ ég hugmynd um kostnaðinn ef verkin eru mörg?

Sendu okkur lista með myndum á kk@organic.is eða hringdu. Við förum yfir listann með þér og þú veist hvað verkin kosta áður en vinna hefst.

Blá rafdrifin Genie GS-1930 skæralyfta á hvítum grunni.

Lyftuleigan

Þarftu lyftu í verkið?

Þakrennur, háir gluggar og útveggir eru auðveldari viðureignar á lyftu en á stiga. Lyftuleigan leigir út rafmagnsskæralyftur á Akureyri með allt að 8 m vinnuhæð. Þú bókar á netinu.

Skoða lyfturnar(opnast í nýjum flipa)

Meira um almennt viðhald

Hafa samband

Segðu okkur frá verkinu. Beiðni um almennt viðhald.

Fylltu út stutta beiðni. Við hringjum til baka samdægurs á virkum dögum, förum yfir verkið og bókum tíma.

Eða hringdu beint

772 3000

Svarað virka daga 08–18

Náum við ekki að svara, hringjum við til baka samdægurs á virkum dögum.

Hvað gerist næst?

  1. Við hringjum í þig.
  2. Við förum yfir verkið með þér.
  3. Við bókum réttan fagmann.
Hvað er að?
Hversu fljótt?

Liggur á? Hringdu í 772 3000. Svarað virka daga 08–18.

Hvar?
Bær eða hverfi.
Lýstu verkinu
Til dæmis „lekur krani á baði“ eða „nýtt parket á 12 m² stofu“.

Áttu mynd af þessu? Sendu hana á kk@organic.is.

Hvernig náum við í þig?
Við hringjum í þetta númer.
Hvenær hentar að við hringjum?

Við notum upplýsingarnar eingöngu til að svara beiðninni.

Eigum við að byrja?

772 3000

Svarað virka daga 08–18. Utan þess tíma getur þú sent beiðni og við hringjum að morgni næsta virka dags.