Kostnaður við rafvirkja ræðst fyrst og fremst af því hvert verkið er og í hvernig ástandi lagnirnar eru. Aldur raflagna og töflu, umfang verksins, efnið og aðgengi að lögnunum skipta mestu. Hér förum við yfir þessa þætti, hvað felst í því að skipta um rafmagnstöflu eða setja upp hleðslustöð og hvers vegna tilkynning til HMS er hluti af verkinu.
Aldur raflagna og töflu
Í nýlegu húsi liggja lagnirnar yfirleitt í rörum, taflan er með lekaliða og sjálfvörum og auðvelt er að bæta við. Í eldra húsi getur rafvirkinn rekist á gamlar lagnir, innstungur án jarðtengingar, skrúfuð öryggi og töflu sem ber ekki meira álag. Þá getur lítið verk, eins og ný innstunga, kallað á að eitthvað annað sé lagað fyrst svo að verkið standist kröfur.
Ef þú vilt átta þig á ástandinu áður en þú hringir er rafmagnspróf HMS (opnast í nýjum flipa) góð byrjun. Þar eru spurningar um töfluna, lekaliðann, innstungur og leiðslur.
Umfang og aðgengi
Það er munur á því að skipta um einn rofa og að leggja nýtt fyrir heilt eldhús. Smáverk er gott að safna saman og láta gera í sömu ferð: ljós sem þarf að tengja, lausa innstungu, ljósdeyfi eða útiljós. Aðgengið skiptir líka máli. Ef lögnin liggur í rörum í veggnum er oft hægt að draga nýjan vír í gegn. Ef leggja þarf nýja leið þarf að fræsa í vegg eða setja utanáliggjandi stokk. Þegar veggir eru hvort sem er opnir vegna endurbóta er besti tíminn til að leggja nýtt.
Bilanir eru annars eðlis en skipulögð verk. Þegar eitthvað hættir að virka þarf rafvirkinn fyrst að finna hvar bilunin liggur, og sú leit getur tekið mislangan tíma eftir því hve aðgengilegar lagnirnar eru og hve vel taflan er merkt. Góð lýsing á því hvað gerðist og hvenær styttir leitina.
Efnið
Rofar, innstungur, ljós, lekaliðar og töflur eru til í mörgum gæðaflokkum og eru misdýr. Snjallrofar, ljósdeyfar og sérstök lýsing taka líka oft lengri tíma í uppsetningu en hefðbundinn búnaður. Ef þú hefur þegar valið eða keypt búnað er gott að segja frá því strax, svo að rafvirkinn geti metið hvort hann hentar lögnunum.
Tilkynning til HMS
Vinna við raflagnir er verk fyrir löggiltan rafverktaka. Samkvæmt 5. gr. laga um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga (opnast í nýjum flipa) á rafverktakinn að fara yfir eigið verk að því loknu, ganga úr skugga um að það standist lög og reglugerðir og tilkynna verklok til HMS. Það gildir bæði um nýjar lagnir og breytingar á lögnum sem fyrir eru. Yfirferðin og tilkynningin eru því hluti af verkinu sjálfu, ekki aukaatriði.
Að skipta um rafmagnstöflu
Algengar ástæður fyrir töfluskiptum eru skrúfuð öryggi, enginn lekaliði, merki um hita eða bruna í töflunni, eða að taflan rúmar ekki fleiri greinar, til dæmis fyrir spanhelluborð, varmadælu eða hleðslustöð.
Umfangið ræðst af stærð töflunnar og fjölda greina, hvort nýja taflan getur farið á sama stað og í hvernig ástandi lagnirnar eru sem tengjast henni. Þegar gamla taflan er tekin niður kemur ástand lagnanna í ljós, og stundum þarf að laga greinar áður en hægt er að tengja þær nýju töflunni. Ef húsið þarf meira afl en heimtaugin ber þarf líka að sækja um breytingu á heimtauginni, á Akureyri hjá Norðurorku.
Hleðslustöð heima
Hleðslustöð er dæmigert verk þar sem taflan og lagnirnar ráða miklu: hve langt er frá töflunni að bílastæðinu, hvort pláss er í töflunni fyrir nýja grein og lekaliða og hvort heimtaugin ber álagið. HMS (opnast í nýjum flipa) mælir með fasttengdri hleðslustöð og segir að uppsetningin eigi alltaf að vera í höndum löggiltra rafverktaka.
Í fjölbýli gilda sérstök ákvæði, 33. gr. a–d í lögum um fjöleignarhús (opnast í nýjum flipa). Eigandi sem vill hleðslubúnað upplýsir stjórn húsfélagsins, sem gerir þá úttekt á framtíðarþörf hússins. Löggiltur rafverktaki annast þann hluta framkvæmdanna sem varðar rafmagn, og hver ber kostnaðinn fer eftir því hvort stæðið er séreign eða sameign.
Hvað er gott að segja rafvirkjanum?
- Hvað á að gera og hvar í húsinu
- Aldur hússins og hvort taflan eða lagnirnar hafa verið endurnýjaðar
- Mynd af rafmagnstöflunni, með framhliðina á
- Hvort fleiri smáverk mega fylgja í sömu ferð
- Hvort búnaðurinn er þegar keyptur, og þá hvaða búnaður
Næsta skref
Lestu nánar um rafvirkjun á Akureyri, eða um hvað þú getur athugað þegar rafmagnið slær út. Viltu að við förum yfir verkið með þér? Hringdu í 772 3000 eða sendu beiðni.

