Kostnaður við að flísaleggja baðherbergi ræðst ekki síst af því sem sést ekki þegar verkinu er lokið: niðurrifi, undirvinnu og rakavörn. Þar á eftir koma stærð og gerð flísanna, mynstrið og hvort gólfhiti fer undir. Hér förum við yfir hvern þátt og hvað gott er að ákveða áður en verkið hefst.
Ef þú ert að endurnýja allt baðherbergið, með lögnum, tækjum og innréttingum, er gátlistinn um endurnýjun baðherbergis góð viðbót við þessa grein.
Niðurrif og förgun
Ef gamlar flísar eru á gólfi og veggjum þarf yfirleitt að brjóta þær niður og fjarlægja, ásamt lími og lausu múrlagi. Hve mikið verk það er fer eftir því hve fast þær sitja og hvað leynist undir. Stundum kemur í ljós rakaskemmd eða ónýtt undirlag sem þarf að laga áður en hægt er að halda áfram. Förgun á múrbroti er líka hluti af verkinu.
Undirvinna og rakavörn
Í baðherbergi er rakavörnin mikilvægasti hluti verksins. Samkvæmt 6.7.5. gr. byggingarreglugerðar (opnast í nýjum flipa) eiga baðherbergi að uppfylla kröfur til votrýma, og samkvæmt 10.5.7. gr. á að vera vatnsþétt lag á gólfum og veggjum votrýma, þétt með fullnægjandi hætti við rör og stokka, og í gólfinu á að vera niðurfall og nægur halli að því.
Áður en rakavörnin fer á þarf undirlagið að vera slétt og traust. Skakkt gólf þarf að rétta af með flotefni eða ílögn, og ef halli að niðurfalli er ekki réttur þarf að byggja hann upp. Veggi þarf oft að spartla eða klæða með rakaþolnum plötum. Þetta er tímafrek vinna sem enginn sér þegar flísarnar eru komnar á, en hún ræður miklu um það hvort baðherbergið endist.
Stærð og gerð flísa
Fermetrarnir segja bara hálfa söguna. Stórar flísar eru fljótlagðar á sléttum fleti en gera meiri kröfur um að undirlagið sé alveg slétt, og þær eru þungar og vandmeðfarnar á vegg. Litlar flísar og mósaík þýða fleiri fúgur og meiri handavinnu. Náttúrusteinn er viðkvæmari en postulínsflísar og þarf oft sérstaka meðhöndlun. Flísarnar sjálfar eru líka misdýrar, og gott er að kaupa ríflega, bæði vegna afskurðar og svo að til séu flísar ef skipta þarf um eina og eina seinna.
Mynstur og skurður
Beint mynstur er einfaldast. Skáhallt mynstur, síldarbeinsmynstur og flísar sem eiga að mætast nákvæmlega í hornum og við niðurfall kalla á meiri skurð og meiri afskurð. Hver lögn, sturtuhorn, gluggi og innrétting þýðir líka skurð. Þá skiptir máli hvort veggirnir eru flísalagðir upp í loft eða aðeins að hluta, og hvort sturtan er með rennuniðurfalli eða hefðbundnu niðurfalli.
Gólfhiti
Ef gólfhiti fer undir flísarnar bætist verkliður við. Rafvirki tengir rafmagnsgólfhita, en vatnsgólfhiti tengist hitakerfi hússins og er verk fyrir pípara. Í báðum tilvikum þarf að samhæfa verkið flísalögninni, því gólfhitinn er lagður áður en flísarnar fara á. Munurinn á kerfunum er útskýrður í greininni um gólfhita og ofna.
Tíminn milli verkþátta
Flísalögn í baðherbergi er ekki unnin í einni lotu. Flotefni, rakavörn, flísalím og fúga þurfa hvert sinn tíma til að þorna eða harðna samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda, og það er ekki hægt að stytta án þess að það komi niður á verkinu. Verkið dreifist því á fleiri daga en fermetrarnir einir gefa til kynna. Ef aðeins er eitt baðherbergi í íbúðinni þarf að hugsa fyrir því hvernig heimilið bjargar sér á meðan.
Hver fagmaður þarf líka að koma á réttum tíma. Lagnir og raflagnir sem fara inn í veggi og gólf þurfa að vera tilbúnar áður en þeim er lokað, og flísalagningamaðurinn getur ekki byrjað fyrr. Þegar verkþættirnir eru skipulagðir í réttri röð þarf síður að bíða.
Það sem bætist oft við
- Nýjar lagnir eða færsla á niðurfalli, sem er verk fyrir pípara
- Rafmagn fyrir lýsingu, viftu og gólfhita
- Kíttun, hornlistar og frágangur við sturtu og bað
- Málun á loft og þá veggi sem ekki eru flísalagðir
Hvað er gott að ákveða áður en verkið hefst?
- Hvaða fleti á að flísaleggja: gólfið, sturtuna, alla veggi eða hluta þeirra
- Hvaða flísar, í hvaða stærð og í hvaða mynstri
- Hvort gólfhiti á að fara undir og þá hvaða gerð
- Hvort lagnir, niðurfall eða tæki eiga að færast
- Hvort þú kaupir flísarnar sjálf(ur) eða fagmaðurinn útvegar þær
Næsta skref
Lestu nánar um flísa- og gólflagningu á Akureyri og farðu yfir gátlistann um endurnýjun baðherbergis. Viltu að við förum yfir verkið með þér? Hringdu í 772 3000 eða sendu beiðni.

